top of page
pastel-school-supplies.jpg

Nánar um lesblindu

Lesblinda er námsörðugleiki sem hefur áhrif á lestrarkunnáttu einstaklings. Þeir sem kljást við lesblindu eiga í erfiðleikum með að breyta bókstöfum í hljóð sem gerir það að verkum að lestur reynist þeim erfiður og leshraðinn slakur (Narayana og Xiong, 2003). Þótt lesblinda hafi mest áhrif á lestur einstaklings getur hún einnig haft áhrif á skrift og stafsetningu. Einstaklingar með lesblindu eiga oft erfitt með að muna hvernig orð eru skrifuð og getur maður séð ýmsar útgáfur af sama orðinu í sömu ritun hjá þeim (Narayana og Xiong, 2003). Flestir sem kljást við lesblindu eiga erfitt með hljóðkerfisvitund og sjá texta á annan hátt, t.d. virðast stafir eða heil orð vera í rangri línu eða jafnvel hreyfast, minnka eða stækka (Um lesblindu, e.d).

 

Önnur einkenni eru erfiðleikar með að leggja tölustafi á minnið, ná innihaldi texta illa þar sem leshraðinn er það hægur, erfiðleikar við stafsetningu og málfræði, og erfiðleikar við að nota réttar stærðfræðiaðgerðir (Narayana og Xiong, 2003). Gott er að hafa í huga að þó svo einhver þessara einkenna eigi við einstakling þá er hann ekki endilega lesblindur og lesblindir hafa ekki endilega öll þessi einkenni (Narayana og Xiong, 2003). Þótt lesblindir geta átt í erfiðleikum með lestur og skrift eru þeir oft góðir í öðrum fögum, þar á meðal stærðfræði (Narayana og Xiong 2003). Sá hæfileiki fær þó oft ekki að skína sökum lesblindu (Elín Vilhelmsdóttir, 2007). Lesblindir kljást oft við lága sjálfsmynd og upplifa að geta þeirra sé slakari en hún er í raun og veru. Ef lesblindir fá viðeigandi stuðning geta þeir náð góðum árangri í námi (The International Dyslexia Association, 2020).

Heimildir sem vitnað er í hér að ofan er að finna í heimildaskrá undir ítarefni

25632581_7122923.jpg

Einkenni

8701775.jpg

Lesblinda og stærðfræðinám

istockphoto-1331856690-612x612.jpeg

Hvað er til ráða

6359306.jpg

Dæmi um námsefni

Bakkalárverkefni 2023

bottom of page